Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:56]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er eitt að kvarta undan því að maður sé að gera fólki upp einhverjar annarlegar skoðanir og vera síðan á sama tíma í raun og veru að gera viðkomandi upp annarlegar skoðanir. Auðvitað er það þannig að við eyðum ekki sömu krónunni tvisvar, ég er alveg hjartanlega sammála því. En eins og ég er búinn að vera að rekja hér í mínum ræðum þá finnst mér það ótrúlega sérstakt að á sama tíma og það geta tugmilljónir komið hérna, farið til og frá landinu í gegnum EES-samninginn — við erum að reyna að fá sérfræðinga utan EES-svæðisins til að koma hingað og við erum að bjóða fólk velkomið frá Úkraínu — séum við alltaf einhvern veginn á varðbergi gagnvart einhverjum pínulitlum hópi sem skiptir í raun og veru ekki miklu máli í stóra samhenginu, fyrir nú utan það að við erum að eyða allt of mörgum krónum, fyrirhöfn og kröftum í þetta hælisleitendakerfi vegna þess að við erum alltaf að reyna að búa til girðingu og halda fólki úti; (Forseti hringir.) reyna að koma í veg fyrir að það geti séð fyrir sér sjálft á meðan það bíður hér og fær úrlausn sinna mála. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að taka undir það að þeir sem hingað koma frá Venesúela séu allt fólk sem er að flýja bágan efnahag. Það er ofureinfaldlega ekki svo, hv. þingmaður.