153. löggjafarþing — 81. fundur,  15. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:14]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. A-liður 1. gr. frumvarpsins bætir við skilgreiningu á hugtakinu „endurtekin umsókn“ í lögin. Aðaltillagan okkar hér snýst um að fella það alfarið brott vegna þess að ákvæði frumvarpsins um endurteknar umsóknir er einfaldlega gallað.