Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá forsætisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1155, um ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku, frá Ásmundi Friðrikssyni, og á þskj. 1205, um aðgreiningu þjóðarinnar og jöfn tækifæri, frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1094, um sanngirnisbætur, frá Indriða Inga Stefánssyni.
Þá hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1037, um kostnað ríkissjóðs við að draga úr tekjuskerðingum, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj.1172, um miðlunartillögu ríkissáttasemjara, frá Halldóri Auðar Svanssyni.