Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 82. fundur,  20. mars 2023.

greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.

[15:06]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég tek heils hugar undir það sem hv. formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar nefnir hér og er algjört lykilatriði í þeirri vinnu sem fram undan er hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, þ.e. ef við eigum að komast að því hvað gerðist þegar verið var að selja eigur ríkisins upp á hundruð milljarða verðum við að geta skoðað öll þau gögn sem þar eru undir, einkum og sér í lagi vegna þess að það liggur fyrir að tveir ríkisendurskoðendur komust ekki að nákvæmlega sömu niðurstöðunni.

Ég hlýddi líka á viðtal við hæstv. forseta þingsins í útvarpinu í gær. Mér fannst svolítið áhugavert að þar kom fram að bréf sem sent er þinginu frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda með greinargerð sem fór formlega inn til þingsins er lesin af hæstv. forseta þingsins sem hefur hana hjá sér, flettir í henni, skoðar og gluggar í, gat síðan í engu svarað spurningum þáttastjórnandans í gær um það sem í henni er, eðlilega vegna þess að það liggur trúnaður yfir skjalinu. Þá auðvitað sitjum við í þeirri stöðu, við sem erum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, að við erum í nákvæmlega sömu stöðu (Forseti hringir.) á opnum fundi og forseti þingsins var í þessu opinbera viðtali í gær. Við getum ekki notað (Forseti hringir.) það sem þarna er undir, jafnvel þótt við höfum aðgang að þessu gagni með mjög svo miklum takmörkunum á nefndasviði þingsins. Það þarf að aflétta (Forseti hringir.) trúnaði af þessari greinargerð svo stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd geti unnið sína vinnu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)