Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 82. fundur,  20. mars 2023.

greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.

[15:08]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Sem nefndarmaður í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd horfi ég í ákveðinni forundran á þá atburðarás sem hér er að teiknast upp. Mér finnst eiginlega bara með svo miklum ólíkindum að út af þessari greinargerð séum við komin með Lindarhvolsmálið og skýrsluna, sem enginn hefur verið að kalla eftir á undanförnum vikum, mánuðum eða síðan hún var síðast til umræðu, í fangið aftur. Enn þá er leynd yfir greinargerðinni og við megum ekki spyrja neinn og við eigum samt að fá settan ríkisendurskoðanda á opinn fund.

Þetta er í rauninni ekki að ganga upp. Eðlilegast í þessu máli væri bara að klára þetta með því að birta þessa greinargerð. Ég held að staðan sé sú að hún verður alltaf birt fyrir rest. Það er eitthvað sem hlýtur að gerast fyrir rest og það er bara best að klára það. Það er bara eins og að rífa plásturinn af, best að gera það hratt.