greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til þess að standa með Ingu Sæland vegna þess að í þessari umræðu sem þarna fór fram var Flokkur fólksins að leggja fram breytingartillögu, það var ekki eingöngu Inga Sæland. Á þeim árum sem ég hef þekkt hana hef ég aldrei þekkt hana fyrir útlendingaandúð eða -hatur og að koma hér upp í ræðustól og fullyrða það, vegna þess að Flokkur fólksins kemur með breytingartillögu við ákveðið mál, er ekki boðlegt og á ekki að líðast. Mér er það gersamlega óskiljanlegt hvernig í ósköpunum á að vera hægt að snúa því sem við í Flokki fólksins vorum að gera þarna upp í eitthvert útlendingahatur eða útlendingaandúð. Ég vísa því heim til föðurhúsanna og viðkomandi þarf þá bara að fara í naflaskoðun um það hvers vegna í ósköpunum hún hefur þá skoðun.