greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.
Í tilefni af athugasemd hv. þm. Ingu Sæland hér fyrr á fundinum vill forseti taka það fram að forsætisnefnd hefur móttekið það bréf sem hún hefur sent og það verður tekið fyrir á næsta fundi. Forseti vill hins vegar geta þess að varðandi ummæli sem falla á þingfundi þá verður forseti, ef hann telur tilefni til, að gera athugasemdir við orðalag þingmanna ef hann telur að það sé ekki sæmandi. Hins vegar verður forseti að geta þess að oft getur verið mjótt á skilsmununum milli harkalegrar pólitískrar umræðu og svo þess sem telja má meiðandi fyrir einstaka þingmenn og verður í raun og veru bara mat forseta á staðnum við þær aðstæður að ráða hvað það varðar. En erindi hv. þingmanns verður tekið fyrir á vettvangi forsætisnefndar og afgreitt þar.