greinargerð um Lindarhvol, orð þingmanns í atkvæðagreiðslu.
Herra forseti. Vegna orða hv. þm. Ingu Sæland er rétt að vekja athygli hennar á því að hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði ekki að hv. þingmaður væri rasisti. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði hér í atkvæðagreiðslu um breytingartillögu hv. þm. Ingu Sæland að tillagan bætti um betur, ekki þingmaðurinn. (Gripið fram í.) Það eina sem væri á ferðinni væri ódýr og ógeðfelldur popúlismi sem byggði ekki á staðreyndum, sem byggði á útlendingaandúð — (IngS: Formaður Flokks fólksins, er það ekki ég, hv. þm. Helga Vala?) (Forseti hringir.) Ég óska eftir að hv. þingmaður og formaður Flokks fólksins lesi ræðu hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur af því að þar sér hún að það er ekki verið að vísa til persónunnar Ingu Sæland heldur tillögunnar sem persónan og þingmaðurinn Inga Sæland var að leggja fram. (Forseti hringir.) Tillögunnar — það er alveg skýrt í ræðunni og það er hægt að lesa þetta á heimasíðu Alþingis. (Forseti hringir.)(IngS: Ég hvet alla til að gera það.)(HVH: Já, þetta er hérna.)