Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 82. fundur,  20. mars 2023.

staða ríkisfjármála.

[15:28]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það er alveg rétt sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir hér á, algerlega rétt, að þegar ég tók við sem forsætisráðherra og þessi ríkisstjórn tók við var kominn hrein og bein innviðaskuld. Við getum þá rifjað upp hver var forsætisráðherra áður. Það var hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Það var nefnilega full þörf á því að bæta í heilbrigðiskerfið, það var full þörf á því að bæta í innviðaframkvæmdir, eins og t.d. samgönguframkvæmdir sem höfðu legið algerlega í láginni. Það var komin skuld við innviði þessa lands hvert sem litið var. Hv. þingmaður getur komið hér upp og rætt það að þessi ríkisstjórn hafi aukið útgjöld. Það er alveg rétt, það var full þörf á því. Það var full þörf á því vegna þeirrar stefnu sem hér hafði verið rekin.

Það er alveg rétt, sem hv. þingmaður bendir á, að ríkissjóði var beitt, og um það var ágætissamstaða, til að takast á við áhrif heimsfaraldurs, sem er ástæða þess að hægt var að spyrna hratt og örugglega við þegar faraldri lauk þrátt fyrir að það brytist út stríð með tilheyrandi hrávöruverðshækkunum. Staðreyndin er sú að hér eru mikil umsvif, hér er mikill hagvöxtur, töluvert meiri en í flestum samanburðarlöndum, sem gerir það að verkum að sjálfsögðu að við erum ekki að fást við verðbólgu í samdrætti. Hv. þingmaður getur haft skoðun á því að ég leyfi mér að benda á það.

Ég get líka sagt það hér og endurtekið það að já, skuldastaðan er góð í alþjóðlegum samanburði. Það er engin ástæða til þess að teikna skrattann á vegginn í þeim efnum. Það sem fyrir liggur hins vegar er að sú fjármálaáætlun sem verður kynnt í næstu viku mun auðvitað bera þess merki að hér er verðbólga sem þarf að ná niður. Við munum beita ríkisfjármálunum í þeim efnum, rétt eins og það skiptir máli að Seðlabankinn hefur beitt sínum stýritækjum til að slá á verðbólgu. Að sama skapi hefur auðvitað skipt miklu máli að vinnudeilur hafa leyst við samningaborðið. Það er gríðarlega mikilvægt til þess að við sameiginlega getum slegið á verðbólgu, náð niður verðbólgu og náð niður verðbólguvæntingum.