Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 83. fundur,  20. mars 2023.

næstu alþingiskosningar.

816. mál
[17:38]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ástæða þess að tekin var ákvörðun um að flýta kosningum um mánuð miðað við lengd kjörtímabils var tvíþætt. Það varðaði annars vegar veðrið og hins vegar að gefa lengri tíma til fjárlagagerðar. Svo þarf ég auðvitað ekki að rifja það upp hér að síðan var töluverð bið á niðurstöðum úr talningarmálinu svokallaða í Borgarnesi þannig að kannski nýttist sá mánuður sem vannst með því að hafa kosningar mánuði fyrr, svo ég fari nú að rifja upp góðar minningar eftir þessar kosningar, ekki sem skyldi. Ég vil samt minna á að sú breyting hefur orðið á undanförnum árum að við vinnum núna út frá langtímaáætlun um opinber fjármál og auðvitað eiga fjárlög að endurspegla þá langtímaáætlun. Við kosningar á hausti ætti þá að liggja fyrir fjármálaáætlun að vori, ekki satt, sem markar rammana sem við eigum að fylgja. En svo kemur ný ríkisstjórn og að sjálfsögðu er ekki hægt að ætlast til annars en að hún setji einhvern svip á fjárlagafrumvarp fyrir komandi ár og þá þarf það að vera hluti af því sem við gerum ráð fyrir í okkar kerfi. Að öðru leyti þakka ég hv. þingmanni fyrir að halda uppi umræðu um þetta mál hér á vettvangi Alþingis.