samkeppnishæfni Íslands í alþjóðaviðskiptum og fjárfesting erlendra aðila.
Frú forseti. Svo það sé sagt þá er alveg rétt að Ísland er drifið áfram af auðlindanýtingu. Við höfum gert vel á mörgum sviðum og ég tek undir að við eigum ekki að einkavæða Landsvirkjun, hún á að vera áfram í eigu þjóðarinnar og það er hægt að tala um ýmsa aðra þætti. Hitt er síðan umhugsunarefni, að við þurfum að fara í sérstakt kynningarátak til að fá betri einkunn hjá matsaðilum. Það segir að mínu mati svolítið mikið um þann gjaldmiðil sem við erum með. Og talandi um kvikmyndagerðarfólk, þá held ég að það sé engin spurning að endurgreiðslurnar hafi skilað sínu en það er umhugsunarefni að kvikmyndagerðarfólk, sem er einmitt að búa til íslenskar myndir — til hamingju Ágúst Guðmundsson, sem hæstv. ráðherra afhenti verðlaun í gær. Það er hárrétt sem hann segir, að við þurfum að framleiða efni á íslensku til að gæta tungunnar. En þegar kvikmyndagerðarfólk og tveir aðilar á sitt hvorum endanum gera áætlanir þá er alltaf gert ráð fyrir 10% út af krónunni; 10% af heildar„budgeti“ til kvikmyndagerðar hér heima. Það er alltaf verið að slá varnagla við krónuna og auðvitað er það enginn fyrirsjáanleiki.
Af hverju erum við síðan ekki með meiri samkeppni á sviði banka- og tryggingamarkaða? Það er alveg ljóst og það hafa forstjórar til að mynda þýska bankans Deutsche Bank og fleiri banka sagt: Það er einfaldlega út af gjaldmiðlinum. Hann er risastór hindrun og það er mikilvægt fyrir okkur að við dettum ekki í þessar skotgrafir á milli þeirra sem eru með og á móti. Ég held að það sé lykilatriði fyrir okkur núna að ræða hvað það skiptir miklu máli, m.a. fyrir samkeppnishæfni Íslands, að vera hér með almennilegan gjaldmiðil. 70% af forstöðufólki nýsköpunarfyrirtækja sögðu á síðasta ári að helsta hindrunin væri gjaldmiðillinn, að erlendar fjárfestingar, sem þessi fyrirspurn snýst um, væru ekki að fást út af því að gjaldmiðillinn væri stór hindrun. Svo því sé komið á framfæri þá held ég að við getum bætt stöðu okkar á þessum listum varðandi samkeppnishæfni og ekki síst það að draga að erlendar fjárfestingar með því að vera hér með almennilegan og fyrirsjáanlegan gjaldmiðil. Það á svo sem ekki að koma neitt á óvart.