úthlutanir Tækniþróunarsjóðs.
Virðulegi forseti. Aðeins varðandi þetta síðasta. Ef þetta er viðhorf Flokks fólksins þá er greinilega mikið verk að vinna að sannfæra flokkinn um að konur þurfa ekki að vera bara duglegri, kerfið þarf líka að vera opið fyrir konur. Það hefur ekki verið þannig þrátt fyrir að hlutfallslega margar hafi sótt um í gegnum tíðina. Það er þess vegna sem verið er að spyrja. Ég óttast það að við séum búin að missa af alveg brilljant hugmyndum, geggjuðum hugmyndum sem auka samkeppnishæfni Íslands, sem ýta undir nýsköpun og sprota, af því kerfið hefur ekki verið þannig uppbyggt í gegnum tíðina. (Gripið fram í.) Það sem er hins vegar ljósið hér er viðhorf ráðherra gagnvart þessu. Hún er á tánum, ráðherrann er algjörlega á tánum. Auðvitað get ég komið hingað og sagt — ég ætla ekki að segja fjandakornið, en það hefði mátt vera betri flokkun eftir kyni og ég hefði viljað fá skýrari svör við ákveðnum spurningum. Það sem hins vegar skiptir mig máli er að finna hér ákveðinn hug, ákveðinn metnað og ákveðna sýn hjá ráðherra þegar kemur að þessum málum um að nýta krafta allra, allra þeirra sem koma með þessar frábæru hugmyndir og eru oft hugmyndasmiðirnir á bak við það sem er verið að sækja um. En við sjáum það ekki eða það eru þessir ósýnilegu múrar. Ósýnilegu múrarnir hafa átt heima í vísinda- og tækniumhverfi, guð minn góður, í gegnum tíðina. Þannig að ég ætla bara að þakka ráðherra fyrir að hafa svarað hér nokkuð skýrt. Já, það er svolítið í land enn þá. Ég mun koma hér aftur eftir einhvern tíma og spyrja ráðherra um hvort við höfum séð einhverjar frekari breytingar. Við erum að sjá jákvæða þróun í fyrirtækjastyrkjunum sem skiptir mjög miklu máli og sendir út þau skilaboð líka til ungra hugvitskvenna eða annarra sem eru með miklar hugmyndir að það er möguleiki, miði er möguleiki, að sækja um en ekki sitja heima af því að kerfið hefur verið frekar andstætt konum í gegnum tíðina. (Forseti hringir.) Við erum að grípa hugmyndir. Við erum að breyta kerfinu. Það finnst mér vera góð skilaboð. Mér finnst það líka skynsamlegt að þetta fari í gegnum Vísinda- og tækniráð eða Vísinda- og nýsköpunarráð, ég held að það sé skynsamlegt að fá leiðsögn þaðan. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin.