Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 83. fundur,  20. mars 2023.

framboð á fjarnámi.

634. mál
[19:21]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Ég þakka fyrir þessa umræðu. Þetta er þarft málefni sem málshefjandi impraði hér á og þessi fyrirspurn — og góð svör hjá ráðherranum. Það sem mig langaði að fá frekar um hjá hæstv. ráðherra er þetta fjármögnunarlíkan af því að veiki hlekkurinn í svona fjarnámi eru oft þessir verklegu þættir og ekki hvað síst í tæknigreinum og jafnvel í raunvísindum. Við höfum verið að ræða hér einmitt um tæknina og jafnan hlut kynja í öllu því dæmi. Það er svolítið þarft að það verði ekki hvati til þess að minnka þennan verklega þátt og að hann fái nægt fjármagn inni í þessu þannig að námið verði sambærilegt við staðnám. Það er alveg hægt að gera það með því að tryggja að nemendur komi í ákveðna lotur og með ýmsum hætti. Það held ég að sé mikilvægt að fá fram í umræðunni, hvernig ráðherra sér það fyrir sér.