Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég er dálítið innblásinn, nýkominn af fundi með framtíðarnefnd og þjóðaröryggisráði; var verið að funda um mögulegar framtíðarmyndir. Þetta er nú með skemmtilegri nefndum sem ég sit í, með fullri virðingu fyrir hinum þremur. Þar leyfa menn sér að láta hugann reika og skiptast á skoðunum frjálsmannlega, allar hugmyndir eru velkomnar og teknar til umræðu með atfylgi ráðherra og ráðuneytisstarfsmanna. Meðal þess sem kom þar upp sem möguleg framtíðarmynd eru þjóðflutningar, ekki var farið nánar út í það í hvora áttina það væri, en við skoðuðum framtíðarspá frá 1986, þegar Íslendingar voru 240.000, og þar var spáð um einhverja tugi þúsunda sem myndu bætast við. Sú spá, þegar á daginn er komið, í dag, reyndist vera 350% undir væntingum. Þarna var líka tekið til mála sem varða þjóðaröryggi og netmál almennt og þá staðreynd að t.d. eftir Covid blasir það við, með öllum fjarfundunum og vaxandi nettengslum unga fólksins, unglinganna, miðaldra fólksins og gamla fólksins, að það hefur eiginlega sljákkað á því um allan heim, verulega, farið niður um 20–25%, að menn sæki mannfagnaði með sama hætti og áður var; fundi, leikhús, tónleika og hvað það er. Það er doði, en kannski eru menn líka sjálfum sér nægari en þeir voru. Það er út af fyrir sig ágætt en það leiðir líka til rofa í samskiptum. Það kemur aldrei í staðinn fyrir mannleg samskipti að skiptast á skoðunum á netinu. (Forseti hringir.) Ég held sérstaklega að einsemd fólks á efri árum sé áhyggjuefni og við skulum gæta þess að fólk einangrist ekki þrátt fyrir þá tæknibyltingu sem við stöndum nú í miðri.