Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Á morgun, 23. mars, er dagur Norðurlandanna. Þá hygg ég að við munum flagga öllum fánum Norðurlandanna og halda þann dag hátíðlegan. Ég held stundum að við þurfum að leggja meiri áherslu á norrænt samstarf og það sem við sem íslensk þjóð erum að fá út úr norrænu samstarfi. Við áttum reyndar ágætissamtal um það hér í gær undir skýrslum alþjóðanefnda, en mér líður stundum í umræðunni eins og við séum stödd á svipuðum stað og við vorum fyrir tveimur, þremur árum síðan þegar við fórum allt í einu að tala um EES-samninginn aftur og mikilvægi EES-samningsins. Það er nefnilega þannig að það eru heilu kynslóðirnar sem hafa vaxið úr grasi sem hafa notið þeirra réttinda sem til að mynda EES-samningurinn veitir okkur án þess þó endilega að átta sig á því að þau réttindi eru til komin vegna EES-samningsins. Það sama á við um norrænt samstarf. Það er ofboðslega mikið af réttindum sem okkur eru tryggð sem íbúum Norðurlandanna þegar við ferðumst á milli Norðurlandanna, flytjum, hefjum störf eða erum í viðskiptum og öðru þess háttar, sem eru til komin vegna samstarfs Norðurlandanna. Þessi lönd eiga bæði ríka menningu en ekki síður ríka og líka samfélagsgerð þar sem við leggjum höfuðáherslu á lýðræði, jafnrétti og frelsi og það er það sem sameinar Norðurlöndin. Ég held að það sé full ástæða til þess að við sem í þessum sal sitjum leggjum áherslu á það hversu mikið við sem Íslendingar, bæði þjóð og þing, erum að græða, ef ég má nota það orð, á norrænu samstarfi. Þannig að ég vil leggja áherslu á það að við fögnum deginum á morgun, degi Norðurlandanna, og munum það í umræðunni hversu mikilvægt þetta norræna samstarf er og ekki síst fyrir litlu herlausu eyjuna úti í Norður-Atlantshafi.