Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Vaxtahækkun Seðlabankans í dag var eftir svartsýnustu spám og rammar inn það ástand í ríkisfjármálum sem Viðreisn hefur varað við um langa hríð. Heimilin sitja uppi með reikninginn, m.a. í formi dýrari matarkörfu og hærri afborgana af húsnæði. Og þunginn fer vaxandi, það finnum við öll. Við hér á Alþingi verðum að bregðast við. Við þurfum að stíga upp úr pólitískum skotgröfum til þess. Vaxandi vandamál líkt og þau sem við stöndum frammi fyrir nú krefjast jarðbundinna lausna sem hægt er að ráðast í strax. Þar kemur að kjarna máls. Sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að ráðast í það verkefni að hemja stjórnlitla útþenslu ríkissjóðs til að bregðast við vaxtahækkunum. Viðreisn er sem fyrr reiðubúin að leggja sitt á vogarskálarnar til að koma með tillögur í þá veru og að standa með góðum málum sem aðrir kunna að leggja á borðið. Stóra lausnin sem Viðreisn boðar er svo öllum kunn, en hún verður því verr og miður ekki að veruleika á morgun. Gagnslausustu viðbrögðin við neyðarástandinu sem nú ríkir eru samt þeirra sem heitast trúa á krónuna, og spyrja hvort það hlakki ekki í okkur Viðreisnarfólki nú þegar krónan bregst þjóðinni enn á ný. Svarið er nei, það hlakkar ekki í okkur. Til þess er ástandið allt of alvarlegt.
Nú ríður á að við hefjum okkur yfir hversdagsþrasið og leitum sameiginlega lausna á því að rétta við bókhald ríkisins, íslenskum heimilum til hagsbóta, því þetta þarf sannarlega ekki að vera svona. Svo þurfum við að ræða hina raunverulegu lausn til lengri tíma. Ríkisstjórnin getur ekki leyft sér að dvelja lengur í Hvergilandi.