Orkuöryggi.
Herra forseti. Þetta hefur verið nokkuð athyglisverð umræða. Það er alveg ljóst að hér eru tveir stjórnarflokkarnir að þrýsta á þann þriðja, Vinstri græna, í að greiða fyrir málum hvað varðar orkuuppbyggingu í landinu. Það er farin sú leið hér í þessum dagskrárlið og það er bara vel. Það er alveg ljóst að það er mikil andstaða innan Vinstri grænna við ákveðnar framkvæmdir og dregnar eru lappirnar, tel ég vera, hvað varðar það að farið sé í borðleggjandi mál eins og t.d. Hvalárvirkjun fyrir Vestfirði. Það er alveg ljóst að það brennur á að sú virkjun komist í gagnið sem fyrst.
En svo eru það orkuflutningarnir. Ef menn vilja greiða fyrir orkuflutningum þá þarf, held ég, ekki bara að fara yfir og skoða kerfið og andmælarétt og kærurétt og allt það, heldur þarf líka að skoða þá leið að þar sem loftlínur liggja um lönd sé tryggt að þær fari þar um þannig að viðkomandi íbúar eða sveitarfélög fái einhvern bita af kökunni. Ef menn fá ekki neitt — menn gera ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn. Og ef það er verið að flytja orku yfir blómlegar byggðir til þess að setja rafmagn í stóriðjuver og menn fá ekkert nema skert útsýni þá er auðvitað komin einhver fyrirstaða. Ég held að það þurfi að skoða þennan þátt, að allir fái að njóta þessa. Síðan hafna ég því að svona skynsamleg uppbygging stóriðju hafi verið einhver dragbítur á uppbyggingu raforkukerfisins. Það er ekki þannig. En ég get alveg tekið undir þau sjónarmið að það er ekki rétt að setja öll eggin í sömu körfuna og það sé kannski rétt að hafa ákveðinn fjölbreytileika hvað varðar stóriðjuver.