Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

Orkuöryggi.

[16:09]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka frummælanda fyrir að hefja þessa umræðu um orkuöryggi, hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, og hæstv. ráðherra fyrir að svara. Þetta er um margt áhugaverð umræða og kannski dregur hún nú akkúrat upp þau mismunandi sjónarmið sem undir eru þegar kemur að orkuöflun í annars orkuríku landi eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson kom inn á. Ég er nú einn af þeim sem telja það hafa borið vott um mikinn stórhug á sínum tíma að ráðist var í hina svokölluðu hitaveituvæðingu, að það hafi verið farsælt þegar upp var staðið. Það var afar umdeilt og orkumálastjóri dró það nú upp á Norðurlandaráðsfundi um daginn, í mjög áhugaverðum fyrirlestri, hvernig þetta var hreinlega kosningamál á sínum tíma. Ekkert okkar sem hér erum í salnum lifði þann tíma en við höfum hins vegar notið ávaxtanna af því.

Ég er líka alveg viss um að það finnast einstaklingar, jafnvel í þessum sal eða víðar í samfélaginu, sem telja að það hafi borið vott um mikinn stórhug að ráðast í svokallaða stóriðjustefnu á sínum tíma. Eftir á að hyggja, hafandi fylgst með þeirri umræðu á seinni metrum, þá deili ég ekki endilega þeirri sýn. En það eru örugglega einhver sem telja að það hafi verið stórhugur.

Ég, hæstv. forseti, kalla nú eftir stórhug í því að við þurfum að ná fram orkuskiptum vegna þeirrar loftslagsvár sem yfir okkur vakir, í að taka farsælar ákvarðanir til framtíðarinnar. Þær felast ekki einvörðungu í að brjóta nýtt land til orkuöflunar. Þær geta m.a. falist í því að ákveða að forgangsraða þeirri orku sem við þegar framleiðum með öðrum hætti. Þetta er ekki vinsælt umræðuefni og ég heyri að það er einhvern veginn uppleggið hjá mjög mörgum, ekki endilega í þessum sal heldur í samfélaginu, að það megi ekki taka nýja ákvörðun um það sem við höfum lagt vinnu og þrek í og kannski að einhverju leyti sýnt stórhug á einhverjum tímapunkti í. En það er bara vel hægt og það tel ég vera stórhuga þjóð og fólk sem getur tekið nýjar ákvarðanir og tekið nýja afstöðu til þess að nýta þá orku sem þegar er framleidd í þágu annarra atriða en hún er að nýtast í í dag. Það gerist ekki í einu vetfangi, ég geri mér grein fyrir því, virðulegi forseti, en þá umræðu þarf að taka.