Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

Orkuöryggi.

[16:16]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Eins og hæstv. forseti getur eflaust tekið undir með mér er stærsta framlag Íslands til loftslagsmála framleiðsla á áli hér á landi. Hún er sú næstmesta í Evrópu á eftir Noregi og ég held að það sé helst Kanada sem keppir við þessi lönd á Vesturlöndum um álframleiðslu, framleiðslu á þessum málmi, þessum umhverfisvæna málmi, á hreinan hátt. Þrátt fyrir það sjáum við sviðsmyndir birtast í skýrslu frá ríkisstjórninni sem send er í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna nr. 26 og nr. 27, þar sem gert er ráð fyrir að álframleiðsla og stóriðja hverfi í raun úr landinu. Það færi illa með þetta framlag Íslands, heldur betur, ég tala nú ekki um atvinnulíf í landinu og verðmætasköpun hér. (Gripið fram í.) Hæstv. ráðherra kallar fram í: Þetta er ekki rétt. Ég get gefið honum eintak af skýrslunni. En orkuöryggi er ekki bara spurning um Ísland. Orkuöryggi er stórt mál víða á Vesturlöndum nú, ekki hvað síst eftir upphaf stríðs í Úkraínu, og ekki hvað síst eftirspurn eftir gasi. Nýting á náttúrugasi hefur reynst einna best við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Á sama tíma leggur ríkisstjórnin til, Sjálfstæðisflokkurinn, að lagt verði bann ekki bara við vinnslu á olíu og gasi í íslenskri lögsögu heldur líka við rannsóknum á því sviði; stefna sem fyrir fáeinum árum síðan þótti helst til öfgakennd eða jafnvel allt of öfgakennd fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði okkur frá því í störfum þingsins í gær að Sjálfstæðisflokkurinn hefði orðið undir á fundi Norðurlandaráðs varðandi ályktun um að draga úr framleiðslu jarðefnaeldsneytis á Norðurlöndum, væntanlega. Kratarnir hefðu þurft að hafa vit fyrir Sjálfstæðismönnunum á þeim fundi. Við þurfum með öðrum orðum, herra forseti, að fara að líta á heildarmyndina í orkumálum og huga að raunveruleikanum. En raunveruleikinn virðist vera að koma illa í höfuðið á ríkisstjórninni í orkumálum eins og öðru þessa dagana.