Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

Orkuöryggi.

[16:21]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir umræðuna. Ég segi bara að við þurfum að ræða þetta betur og ég ætla ekki að svara hv. þingmanni vegna þess að ég ætla að reyna að leiðrétta sumt af því sem kom fram í umræðunni og hvet hv. þingmann til að fara sérstaklega í aðra umræðu um smávirkjanirnar.

Varðandi það að hér sé talað um að ekkert sé að gerast þegar kemur að því að tryggja raforkuöryggi, þá er þetta komið í samráðsgátt — hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson spurði að því — og hefur m.a. verið í fjölmiðlum af því að það hefur verið gagnrýnt. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir æsti sig mikið hér og talaði um að það væri fráleitt að tala um loftslagsmálin í tengslum við að það þyrfti að framleiða græna orku, en svo kom hv. þm. Logi Einarsson, flokksbróðir hennar, og benti réttilega á það, eins og allir aðrir þingmenn, að það þyrfti að sinna því sérstaklega.

Þegar hins vegar kemur að því að breyta þessum reglum þá vek ég athygli, sérstaklega þeirra þingmanna sem eru í flokkum sem eru mjög fylgjandi Evrópusambandinu, á því að við þurfum að vinna þetta eftir þeim reglum sem við fylgjum varðandi Evrópska efnahagssvæðið. Það er ekki þannig, virðulegi forseti, að sá sem hér stendur ákveði hvað sé virkjað. Hins vegar gengum við frá því hér á hv. Alþingi að leyfa ákveðna hluti í nýtingarflokk, 214 MW í vatnsafli, 865 MW í jarðvarma og 222 MW í vindorku. Miðað við upplýsingar Orkustofnunar um það sem er í gangi núna eru virkjanaframkvæmdir upp á 315 MW og aflaukningarfrumvarpið sem ég vísa í á að skila 190 MW og bætt orkunýting, sem verið er að vinna að með ýmsum leiðum, gæti skilað 120 MW, þá er miðað við það sem gæti gerst fyrir 2030 samkvæmt nýjustu upplýsingum.

Varðandi stóriðjuna þá er það þannig að við Íslendingar báðum um stóriðjuna til að geta byggt upp flutningskerfið okkar. Þegar kemur að flutningskerfinu þá er það Landsnet og síðan dreifikerfið, en það eru önnur fyrirtæki sem sinna því og það eru settir miklir fjármunir í það. En það liggur fyrir að það þarf að gera betur og um það hafa m.a. komið frumvörp, t.d. frá hæstv. innviðaráðherra.

(Forseti hringir.) Hér var talað um að það væri skelfilegt að styðja tillögu í Norðurlandaráði um að draga úr jarðefnaeldsneyti. Ég veit ekki hvernig, virðulegur forseti, við ætlum að ná þessum markmiðum ef við ætlum ekki að draga úr jarðefnaeldsneyti. (Forseti hringir.) Út á það gengur málið til að ná árangri í loftslagsmálum.

Ég hvet, virðulegi forseti, hv. þingmenn að nota tækifærið og spyrja mig í fyrirspurnatíma, kalla eftir sérstakri umræðu, (Forseti hringir.) því jafn góð og þessi umræða er þá segir hún okkur það að við þurfum virkilega að ræða þessi mál betur og upplýsa hv. þingheim um hvað er í gangi, því það er mjög margt í gangi.