staða ríkisfjármála.
Frú forseti. Stutta svarið hjá hæstv. fjármálaráðherra var: Já, það verður skoðað að hækka skatta, ekki að draga úr eyðslunni heldur að reyna að ná tökum á ríkisfjármálunum með því að taka meira frá almenningi. Það er verið að skoða skattahækkanir og verður farið yfir listann, heyrðist mér hæstv. ráðherra segja, en tekur sérstaklega fram að það verði dregið úr ívilnunum vegna umferðar. Nú held ég að flestir þekki það að álögur á umferð, með ýmsu móti, eru gríðarlega miklar á Íslandi og það bitnar á öllum almenningi. Ef menn vilja breyta um kerfi til að ná auknum gjöldum af fólki sem ferðast um á rafmagnsbílum, þá þarf að koma á móti lækkun og helst afnám annarra gjalda, þessara svokölluðu grænu gjalda sem ríkisstjórnin hefur sífellt verið að hækka að undanförnu, í ætt við það sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur lagt til og oft verið rætt. Stendur eitthvað slíkt til hjá hæstv. ráðherra og stendur ekkert til að spara neins staðar?
Hæstv. forsætisráðherra sagði: Ég er ekki að tala um niðurskurð, ég er að tala um hóflegt aðhald og aðgerðir sem miða að því að einfalda stjórnkerfið. Þetta (Forseti hringir.) sagði forsætisráðherra ríkisstjórnar sem er búin að stækka báknið meira en nokkru sinni fyrr og ekkert hefur líklega stækkað eins mikið og forsætisráðuneytið sjálft, sem aldrei hefur vaxið eins mikið í tíð eins ráðherra.