hungursneyðin í Úkraínu.
Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri, þegar við erum að greiða atkvæði um þetta táknræna og mikilvæga mál, og þakka flutningsmönnum tillögunnar fyrir málið og þakka utanríkismálanefnd fyrir sína vinnu. Við skulum leyfa okkur að vera dálítið glöð með að hafa frelsi til að samþykkja svona mál og greiða um það atkvæði. Mér þykir ótrúlega vænt um að um málið sé þverpólitískur stuðningur og ég veit að þetta er mál sem skiptir úkraínsku þjóðina raunverulegu máli, ekki í þykjustunni heldur raunverulega og sérstaklega núna. Þótt langt sé liðið frá þessum ömurlegu tímum þá eru þau að upplifa ömurlega tíma núna og það er hægt að setja það í samhengi þannig að viðurkenning á því frá sem flestum þjóðþingum, og okkar þar á meðal, er eitthvað sem skiptir manneskjur raunverulegu máli. Mér þykir mikill sómi að því fyrir okkur hér að samþykkja málið með þessum hætti eins og við gerum hérna og ég hlakka mikið til að geta sent skilaboð á minn kollega og látið hann vita af því að þetta mál sé í höfn.