almannatryggingar og félagsleg aðstoð.
Herra forseti. Við í minni hluta velferðarnefndar erum sammála markmiði frumvarpsins um skýrleika og kaflaskiptingar en teljum nauðsynlegt að kveða með skýrari hætti á um nokkrar greinar frumvarpsins þannig að enginn vafi leiki á túlkun þeirra. Breytingartillögur okkar, sem við lögðum fram í sérstöku nefndaráliti, eru m.a. um að fjármagnstekjur maka lífeyristaka eða barna hans skerði ekki lífeyrisgreiðslur, um að mæðra- og feðralaun skerði ekki lífeyrisgreiðslur, að áhrif milliríkjasamninga verði aldrei til að setja fólk í verri stöðu en lögin segja til um, að árlegar hækkanir greiðslna fari eftir sömu viðmiðum og hækkanir til alþingismanna, að miðað verði við 25 ára aldur í stað 18 ára til að styrkja réttindi ungmenna með örorkumat, og að við endurreikning greiðslna verði bæði miðað við atvinnutekjur og lífeyristekjur.
Allt eru þetta tillögur til bóta og auka skýrleika. Allar þessar breytingartillögur minni hlutans, sem eru á sérstöku nefndaráliti, voru unnar í samráði við Öryrkjabandalagið.