almannatryggingar og félagsleg aðstoð.
Virðulegi forseti. Þarna er breytingartillagan sú að hætt verði að skerða ellilífeyri vegna atvinnutekna. Hvers vegna í ósköpunum erum við með skerðingar á atvinnutekjur? Þeir sem eru að vinna borga skatta. Er það ekki nóg? Hvers vegna í ósköpunum dettur einhverjum í hug að búa til letjandi kerfi og reyna að þvinga fólk til að vinna ekki? Og ef því dettur það í hug þá fær það ekki nema brotabrot. Það þarf fyrst að borga skatta og síðan skerðingar. Hver fann upp þetta heimska kerfi og hver viðheldur þessu heimska kerfi? Jú, það virðast vera ríkisstjórnir undanfarinna áratuga. Þessi ríkisstjórn sem nú er við völd virðist ætla að halda því áfram líka, sem er gjörsamlega óskiljanlegt. Hættum að skerða atvinnutekjur, leyfum bara fólki að vinna og það borgar skatta.