Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

almannatryggingar og félagsleg aðstoð.

533. mál
[11:51]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Á hverju ári er tekist á um hækkunarprósentu lífeyrisgreiðslna og bóta almannatrygginga og þau viðmið sem þar er beitt sem eru óskýr. Það er tortryggni og vantraust í gangi varðandi það. Öryrkjar og eldra fólk sem þarf að treysta á almannatryggingar fer ekki í verkfall. Það gerum við ekki heldur en við erum með sérstök viðmið til að hækka okkar laun árlega. Þessi breytingartillaga okkar í minni hlutanum er að við greiðslur almannatrygginga verði notuð sömu viðmið og notuð eru til að hækka laun alþingismanna, sömu viðmið. Þetta trúum við að muni leiða til þess að traust aukist og tortryggni minnki þegar rætt er um almannatryggingar og að launagapið muni ekki halda áfram að vaxa líkt og það gerir nú ár frá ári.