almannatryggingar og félagsleg aðstoð.
Forseti. Þessi breytingartillaga er samhljóða þingmáli sem ég er með hérna fyrir þinginu þannig að ég tek hjartanlega undir þessa breytingartillögu. Það væri æðislegt ef það væri bara hægt að afgreiða þetta núna. Ekki nóg með það heldur er þingmálið mitt samhljóða núgildandi lögum um laun þingmanna og ráðherra, um það hvernig þau laun eru uppfærð. Það er merkilegt að það virðist vera að meiri hlutinn ætli að hafna því að láta kjör öryrkja eða þeirra sem fá almannatryggingar uppfærast á sama hátt og sín eigin laun og laun ráðherra. Það er ein viðbót í mínu þingmáli, sem er í breytingartillögunum líka, en það er að taka tillit til krónutöluhækkana. Það er ekki í núgildandi lögum þannig að það er í rauninni eini munurinn á núgildandi lögum og þessari tillögu.
Mér finnst þetta áhugavert því að eins og ákvæðið er núna um launaþróun þá er það óskýrt. Umboðsmaður Alþingis hefur einmitt bent á að það þurfi að gera þetta skýrara. Launaþróun er ekki eitthvert (Forseti hringir.) lögformlegt skilgreiningarheiti. Í staðinn er það bara fjármálaráðuneytið sem ákveður það (Forseti hringir.) af eigin geðþótta: Þetta á að vera svona u.þ.b. einhvern veginn launaþróunin á næsta ári og svona mun þetta hækka. Þetta á að vera samkvæmt einhverjum (Forseti hringir.) útreikningum miðað við kjarasamninga en það hefur alltaf verið vanmetið. Þess vegna ættu (Forseti hringir.) kjör almannatrygginga að vera 60% hærri en þau eru núna út af þessum mistökum.