stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Já, ég tel nú að tonn af þorski sé jafnt og tonn af þorski og að það hljóti alltaf að koma til álita þegar við erum með það kerfi sem við leggjum til grundvallar. Ég veit að ég og hv. þingmaður erum ósammála þarna en hann telur að tilteknar veiðar eigi að standa fyrir utan kerfið. Ég vil hins vegar segja það, af því að við ræddum saman, ég og hv. þingmaður, á fundi samráðsnefndar um auðlindina okkar, að aflaregla er eitthvað sem þarf að skoða. Það er alveg hárrétt að það þarf að rýna þetta í hörgul en að halda því fram, hvort sem er á fundum þar eða hér í þingsal, að það sé eitthvað annað sem þeirri sem hér stendur gengur til en að hlusta eftir mismunandi sjónarmiðum — ég hef haldið mjög marga fundi með strandveiðisjómönnum, ég vil veg strandveiða sem mestan og ég mun halda áfram að beita mér í þá veru. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður getur snúið sér til veggjar á meðan það gengur yfir en það er mín afstaða.