stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni athugasemdina eða spurninguna. Það er ekki alveg nákvæmt hjá hv. þingmanni að segja að þetta sé í óþökk þeirra sem stunda strandveiðar af því að það fer dálítið eftir því hvar viðkomandi er staddur. Það er líka ekki nákvæmt að halda því fram að hér sé verið að skarka í þessu kerfi með svo afgerandi hætti sem hv. þingmaður lætur liggja að á meðan allt annað sé látið eiga sig. Við erum með allnokkur frumvörp í gangi sem lúta t.d. að orkuskiptum í sjávarútvegi og eru nú til meðferðar í hv. atvinnuveganefnd. Athugasemdir og ákvarðanir sem lúta að því hver rentan er af nýtingu sameiginlegrar auðlindar eru alltaf á dagskrá. Þær eru alltaf á dagskrá. Ég hef ekki staðið fyrir því eða talað fyrir því að það sé ekki í lagi að ræða þessi mál vegna þess að hin stóra og yfirgripsmikla vinna sé í gangi, og ég fagna þeirri umræðu. En ég verð hins vegar að segja það að núna eru til umræðu (Forseti hringir.) 60 bráðabirgðatillögur og ég vil þakka fyrir það að hv. þingmaður tilheyrir þingflokki sem hefur verið (Forseti hringir.) einna öflugastur í því að taka þátt í þeirri vinnu en við áttum góðan fund í þessari viku þar sem grundvallaratriðin voru rædd.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að ræðutíminn er mjög takmarkaður í andsvörum og einungis ein mínúta.)