Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[15:36]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ef ég skildi ræðu hennar áðan, þar sem hún fór yfir efni frumvarpsins, þá er þetta einfaldlega í hennar huga svo brýnt sanngirnismál, þær breytingar sem hér er verið að gera á strandveiðikerfinu, að það þurfi einfaldlega að ráðast í þetta sem fyrst. Þá velti ég fyrir mér þessum stóru spurningum sem lúta að auðlindarentu í sjávarútvegi. Nú er það þannig að það er að verða til alveg gríðarlegur hvalrekagróði, sérstaklega hjá stærstu útgerðunum, m.a. vegna hækkunar á verði sjávarafurða erlendis. Þótt það varði kannski ekki beinlínis það frumvarp sem hér er til umræðu vil ég fá að svindla og spyrja hæstv. ráðherra hvort við megum þá ekki örugglega vænta þess að hún gangi jafn hreint til verks og hér og að við fáum þá að sjá einhverjar lágmarksbreytingar til að koma því (Forseti hringir.) stóra réttlætismáli í einhvern farveg í næstu viku þegar fjármálaáætlun verður kynnt, t.d. með álagi á stórútgerðina á Íslandi, álagi á veiðigjöldin sem þær greiða.