stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu hér. Margar spurningar vakna og þar á meðal um þessi hugtök sem hæstv. ráðherra eru hugleikin; sanngirni, réttlæti og jafnræði. Já, það er sanngirni og jafnræði. Ég velti fyrir mér núna, þegar við erum sannarlega að hverfa til fortíðar í því sem lýtur að þessari svæðaskiptingu og talað er um að sjá til hversu margir eru skráðir á hvert svæði — er hæstv. ráðherra meðvitaður um það að fiskgengd í kringum landið er afskaplega mismunandi?
Í öðru lagi, er hæstv. ráðherra meðvitaður um það að menn að sunnan, vestan og austan skrá lögheimili sitt til þess að geta fært sig á milli þeirra svæða þar sem fiskurinn kemur fyrst til þess að reyna virkilega að ná í einhverja rentu af sjávarútvegi — þeir eru búnir að kasta aleigu sinni í að koma sér upp búnaði til þess og hafa ekki einu sinni öryggi í 48 daga? (Forseti hringir.)
Til viðbótar, af hverju tryggir hæstv. ráðherra ekki 48 daga af 365 á árinu fyrir þessa strandveiðisjómenn fyrst þetta kerfi er henni hugleikið?