stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Miðað við hvernig fyrirkomulagið hefur verið síðustu ár hefur mátt landa 650 kílóum á dag á hvern bát. Ef miðað er við að fjöldi báta væri sambærilegur þeim sem var í ár, þá þyrfti 48 daga sinnum 650 kíló, sem eru 20.280 tonn, til að tryggja þessum 650 bátum nægar aflaheimildir í 48 daga. Það er reikningsdæmið. Ef gert er ráð fyrir því að bara fjórir af hverjum fimm dögum nýtist til veiða þá þyrfti 16.000 tonn. Það myndi þýða að ef 5,3% potturinn væri enn þá til og honum ekki breytt, þá þyrfti að afleggja öll önnur byggða- og atvinnuverkefni sem til eru í dag og ráðstafa þeim heimildum í strandveiðikerfið. Það er veruleikinn sem við stöndum frammi fyrir og það skref væri ekki hægt að stíga án atbeina Alþingis.