Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[15:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem í rauninni svaraði engu af því sem ég spurði um. Ég verð að viðurkenna að ég er bara svona treggáfuð að ég áttaði mig engan veginn á því hvert hæstv. ráðherra var að fara með þessu svari. Ég er hins vegar að tala um 48 dagana, um sanngirni og jafnræði og svo vil ég vísa til þess sem hæstv. ráðherra nefndi áðan, að eitt tonn væri eitt tonn. Það virðist ekki skipta neinu máli hvernig það tonn er dregið úr sjó. Er það á krók eða skilar þetta tonn sér í land í gegnum stórvirk dragtroll sem rífa svoleiðis upp botninn og rústa svoleiðis lífríkinu hérna að það er skandall að því? Þegar hæstv. ráðherra talar um tonn á móti tonni, að það skipti ekki máli hvernig það er veitt heldur hvernig það kemur að landi, er þá hæstv. ráðherra kannski líka að horfa í það hversu mörgum prósentum, tugi prósenta, er fleygt í sjóinn af þeim stórvirku og glæsilegu vinnuvélum sem stórskipaflotinn okkar er?