Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[16:03]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var eitt atriði í ræðu hv. þingmanns sem mig langar að koma inn á og mér fannst í rauninni erfitt að hlusta á hér inni. Ýmist gerði hv. þingmaður lítið úr því að það væri líffræðileg þekking á bak við þær ákvarðanir sem stjórnvöld eru að taka nú eða leggja til nú eða hafa tekið á síðustu árum, þar væri engin líffræðileg þekking að baki, eða gerði lítið úr þeirri líffræðiþekkingu sem við sækjum til okkar stofnunar sem rannsakar haf og vatn, Hafró. Nú er það þannig að bæði ég og hv. þingmaður erum líffræðingar og vorum saman í líffræði ásamt núverandi forstjóra Hafrannsóknastofnunar og því þykir mér verðugt að hv. þingmaður svari því hvaða líffræðiþekking er sú eina rétta sem við eigum að byggja fiskveiðistjórnarkerfi okkar á. (Gripið fram í.)