stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Við vorum ekki að tala um aflaregluna eina og sér. Ég var að vitna í orð hv. þingmanns um það hvernig hann talaði til ráðherra. (SigurjÞ: Hvað var það?)(Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Hér var hv. þingmaður að halda því fram að ráðherrann væri taglhnýtingur stórútgerðarinnar. Það kom skýrt fram og ég hvet hv. þingmann til að lesa ræðuna sína þegar hún birtist. Hann gerði það ítrekað, að hún væri talsmaður stórútgerðarinnar og að í ráðuneytinu væri unnið með þeim hætti að þar væru þeir fyrstir og fundir með Samherja og annað slíkt sem hv. þingmaður vitnaði í og fullyrti að ráðherrann hefði ekki átt samtal við smábátaútgerðina, sem þó var upplýst hér áðan í andsvörum. Það er þetta sem ég er að gagnrýna. Ég er ekki að gagnrýna það hvort aflareglan virkar eða ekki, það getum við tekist á um í atvinnuveganefnd. En hrokinn og það niðrandi tal gagnvart hæstv. ráðherra sem fór hér fram áðan — ég segi enn og aftur: Ég hvet hv. þingmann til að lesa ræðuna sína þegar hún birtist.