Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

stjórn fiskveiða.

861. mál
[16:11]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég bara ítreka það að mér finnst leitt að fólk taki þessu svona illa. Mér fannst þetta bara eins og maður segir, ekki ætlaði ég að særa nokkurn mann og síst af öllu hæstv. ráðherra. Það sem ég er að gera hér er að reyna að ná fram einhverri hugsun, einhverri jákvæðri hugsun, hugsun eins og hún áminnti mig um hér í vikunni, að koma með einhvern bjartsýnan tón inn í umræðuna. Ég tel mig hafa gert það. Ég tel mig einmitt hafa bent á að það séu mikil tækifæri. Hæstv. forseti þingsins hér, ég treysti honum til þess að ýta við mér ef ég fer yfir strikið. Það er ekki ætlunin að særa einn né neinn og síst hæstv. sjávarútvegsráðherra. En ég vona innilega að þessi litla ræða mína hafi ýtt við fleirum en hv. þm. Bjarkeyju Gunnarsdóttur og vonandi hæstv. ráðherra.