stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Það væri áhugavert að heyra afstöðu hv. þingmanns til umsagnar Landhelgisgæslunnar. Ég ætlast ekkert til þess að hann dragi afstöðu sína strax til baka hvað varðar málið. En það væri fróðlegt að heyra hans hugleiðingar, hvernig hann sæi fyrir sér að hægt væri að mæta þessum athugasemdum. Af því að maður er nú í tengslum við ýmsa litla Sjálfstæðismenn hringinn í kringum landið þá er almennur vilji, skynjar maður, vítt og breitt til að styðja þetta og jafnvel hjá aðilum sem tengjast greininni, fá aðeins meira líf í hafnirnar. Ég skynja líka breytt viðhorf, jafnvel meðal þingmanna hér, til strandveiða. Þess vegna væri ágætt að heyra t.d. hvort hann væri tilbúinn að skoða þann möguleika að styðja þessar breytingartillögur ef hægt væri að finna einhvern sveigjanleika í skúmaskotum kerfisins, kannski hjá norskum laxabændum fyrir austan eða hjá aðilum sem eru jafnvel komnir upp fyrir kvótaþakið og eru að fá byggðakvóta. Það er hægt að ná ýmsu inn og það er sveigjanleiki líka hvað varðar VS-afla og hvað þetta allt heitir. Ef það myndi finnast einhver góður sveigjanleiki í þetta — af því að það er alveg ljóst að það er enginn fiskstofn ofveiddur með handfæraveiðum.