svör við fyrirspurnum.
Forseti. Þetta er uppáhaldsfundarstjórnarefnið mitt. Staðan er þannig að það eru 14 fyrirspurnir sem hafa beðið í meira en 100 virka daga en tímafresturinn er 15 virkir dagar. Við erum að tala um 38 sem eru með 70 daga eða lengri biðtíma, það munar dálítið á svona fyrir og eftir áramót líka. Svo eru ansi margar fyrirspurnir sem eru yfir frestinum, ég held að það séu nokkurn veginn allar. Eina fyrirspurnin sem er ekki komin yfir frestinn er um orkunýtingu bygginga frá Pírötum og svo þessar allra nýjustu sem er 20 talsins eða eitthvað því um líkt sem eru undir mörkunum. Við minnum enn og aftur á það að það á að svara fyrirspurnum á tilhlýðilegum tíma. 15 virkir dagar. Við erum með 14 sem eru með meira en 100 daga, 133 daga sú sem er með lengstan tíma.