staðan í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegur forseti. Að leita ítrekað til lækna vegna veikinda, verkja og vera sögð vera með vefjagigt, vöðvabólgu eða vera bara ímyndunarveik er því miður saga fjölda kvenna sem hafa lýst þvílíkum móttökum í heilbrigðiskerfinu. Að greinast eftir dúk og disk með ólæknandi krabbamein sýnir fáránleikann og brotalömina sem er í okkar heilbrigðiskerfi. Að veikt fólk fái eftir langan tíma loks greiningu og fái þá bara að vita að það er að fara að deyja er ömurlegt og á ekki að eiga sér stað. Það verður strax að gera eitthvað í heilbrigðiskerfinu. Það eru gífurlegar langir biðlistar eftir að komast til heimilislækna. Það eru gífurlegar langir biðlistar eftir geðheilbrigðisþjónustu. Það eru gífurlega langir biðlistar eftir geðgreiningu barna. Allir þessir biðlistar eru að lengjast. Ítrekað er skortur á nauðsynlegum lyfjum fyrir börn og það er ítrekað skortur á lyfjum fyrir öryrkja og fólk í hjólastólum lendir í lífshættu vegna lyfjaskorts. Við vitum hvernig bráðamóttakan hefur verið, fólki er ekki rótt með að fara þangað og það var sagt að fólk ætti ekki að fara á bráðamóttökuna heldur á heilsugæsluna og síðan þegar fólk ætlar að fara á heilsugæsluna þá er því sagt að fara ekki á heilsugæsluna heldur halda sig heima. Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað ætlar ráðherrann að gera við því að fjöldi kvenna segir að það sé mjög erfitt að fá greiningu vegna veikinda þeirra og hvernig ætlar hann að leysa þessi mál eða er hann búinn að gefast upp á heilbrigðiskerfinu?