biðlistar eftir geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn.
Forseti. Biðlistinn er í raun og veru ekki svona langur en hann er samt það langur að fólk gefst upp og kærir sjálft sig til barnaverndar. (Gripið fram í.) Það er málið sem ég var að tala um. Það var málið sem ég var að vísa í, til að komast í greiningu. Það var það sem var fjallað um í fréttinni sem ég vísaði til í fyrri spurningu minni. Ég heyri það sem ráðherra segir en ég sé ekki áhrifin af því, ég sé ekki ráðherra koma og segja: Þetta hérna er vandinn. Við erum að gera þetta núna og áhrifin af því koma í ljós eftir hálft ár af því að þá erum við búin að ná að þjálfa upp mannskapinn sem getur tæklað áskorunina sem við erum með í biðlistum til þess að koma fólki á rétta staði. Það er engin svoleiðis áætlun í gangi sem ég sé. Ég sé bara: Við erum að reyna að útvista hinu og þessu, senda fólk hingað og þangað, við vitum ekkert hvað það kostar, vitum ekkert hvaða áhrif það hefur og biðlistar lengjast á meðan.