uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .
Virðulegur forseti. Það er auðvelt að svara þessari spurningu hv. þingmanns og ég skil hann eiginlega ekki að halda því fram að einhver tímasetning, sem er reyndar mjög brött í því að uppfæra verkáætlanir, kostnaðaráætlanir, framkvæmdaáætlanir, tímalínu verkefnisins og fleira, og það að menn setji slíkar álögur á sjálfa sig að reyna að vinna hratt og vel, hafi eitthvað með aðkomu Alþingis að gera. Í samgönguáætlun var samþykkt hér á sínum tíma að setja, ef ég man rétt, um 2 milljarða á ári á þessu 15 ára tímabili. Það var ákvörðun Alþingis. Það var líka ákvörðun Alþingis að samþykkja að búa til fyrirtækið Betri samgöngur sem eru að stóru leyti í eigu ríkisins og síðan sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Í lögum um Betri samgöngur er þeim nákvæmlega falið allt það sem þarna stendur þannig að það er ekkert nýtt í því. Það kemur hins vegar ekki í veg fyrir að Alþingi geti fjallað um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu enda hefur nefndin eðli máls samkvæmt kallað eftir upplýsingum um framganginn vegna þess að það skiptir svo miklu máli í heildarsamhengi uppbyggingar samgöngumála á Íslandi. En að halda því fram að þessi tímasetning sé sett fram til þess að komast einhvern veginn fram hjá Alþingi er svo mikil þvæla að ég hef bara gaman af því að koma hérna upp og segja: Það er rangt hjá hv. þingmanni að það hafi eitthvað með það að gera.