Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 87. fundur,  27. mars 2023.

uppfærsla samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins .

[15:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Hæstv. forseti. Svarið var nokkurn veginn eins og ég reiknaði með og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það. Það hittist bara þannig á að í minnisblaðinu sem um ræðir, sem er birt á vegum ráðuneytis hæstv. ráðherra, segir m.a., með leyfi forseta:

„Ekki hefur náðst endanlegt samkomulag milli aðila samkomulagsins um það hvað það sé nákvæmlega sem sáttmálinn greiði í hverri framkvæmd og hvað ekki (mörkun).“

Og áfram segir, með leyfi forseta:

„Í drögunum er nú gert ráð fyrir að sáttmálinn greiði helming kostnaðar sveitarfélaganna vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga. Hefur sá kostnaður ekki verið verðmetinn.“

Og áfram segir, með leyfi forseta:

„Viðræðuhópur ríkis og sveitarfélaga klári drög að samningi um eflingu almenningssamgangna. Rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu verði tryggður með aðkomu sveitarfélaga og ríkisins.“

Aðkoma ríkisins er nefnilega algjört kjarnaatriði þarna. Það var sérstaklega um það rætt þegar gengið var frá heimild til stofnunar þessa hlutafélags að ríkið sæi ekki um og kæmi ekki að rekstri borgarlínunnar, hvernig sem hún nú verður í laginu. Einmitt þess vegna þykir mér tímasetningin, (Forseti hringir.) að það eigi að klára þetta eftir að þingið er farið heim, athyglisverð og í raun (Forseti hringir.) ámælisverð og ég ætla að leyfa mér að kalla það reginhneyksli.