staða heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og það er rétt sem hv. þingmaður segir að heilbrigðisþjónusta er háð fjölmörgum öðrum innviðum sem eru kannski ekki beinlínis heilbrigðisþjónustuinnviðir. Hann dregur hér fram öryggisþætti eins og rafmagnið og samgöngurnar, alveg klárlega. Eftir að ég kom inn á þing og sérstaklega þegar ég fór í stól heilbrigðisráðherra þá horfir maður á samgöngur með allt öðrum hætti. Ég setti sérstakan hóp af stað til að taka hratt utan um bráðaþjónustu í öllu landinu. Það lá alveg ljóst fyrir alls staðar á landinu, hvort heldur var á heilbrigðisstofnunum eða í heilsugæslunni, að það þurfti að uppfæra tækjabúnað. Ég setti þegar 300 milljónir til að uppfæra tækjabúnað alls staðar á landinu og það fóru bara allir af stað í það verkefni til að styrkja og styðja við starfsfólkið sem verður alltaf, óháð öllu öðru, hryggjarstykkið (Forseti hringir.) í þessari þjónustu okkar. Svo er ég með hóp sem er að taka utan um flutningana, sjúkraflutningana, og þessar sérstöku aðstæður í Vestmannaeyjum varðandi fjarlægðir og tíma og þetta sér þyrluverkefni sem hv. þingmaður kom inn á.