svör við fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Ég hef hug á að spyrja hæstv. forseta að því hvað líði skriflegum fyrirspurnum mínum. Ég á eina fyrirspurn sem varðar útselda vinnu sérfræðinga Stjórnarráðsins og opinberra háskóla, frá 17. nóvember sl. Ég er líka með fyrirspurn til dómsmálaráðherra varðandi gæsluvarðhald og fengelsisvistun útlendinga, frá 31. janúar sl. Svo er ég líka með skriflega fyrirspurn um kostnað vegna afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd. Fjórða fyrirspurnin varðar samninga um skólaþjónustu. Allar þrjár síðari fyrirspurnirnar eru frá 31. janúar en sú fyrsta frá miðjum nóvember sl.
Spurningin þessi: Hvað líður svörum við þessum fyrirspurnum? Hversu marga mánuði á ég að þurfa að bíða eftir svari við fyrirspurn um útselda vinnu sérfræðinga Stjórnarráðsins og opinberra háskóla, sem er frá miðjum nóvember?