meðferð sakamála.
Frú forseti. Ég tek undir orð hv. þingmanns og formanns allsherjar- og menntamálanefndar, Bryndísar Haraldsdóttur, sem sagði í niðurlagi ræðu sinnar að þetta mál hefði verið þess eðlis að nefndin og mögulega ráðherra töldu að þetta yrði fljótgert og fljótunnið. Svo varð þó ekki af því að nokkur álitaefni komu fram. Fyrir nefndina kom fjöldi gesta og viðraði ýmsar skoðanir. Einhverjir voru á því að þessi breyting væri með öllu óþörf og það ætti að vera þannig að endurupptökudómurinn myndi standa, án þess að farið yrði í milliliðalausa sönnunarfærslu fyrir dómi að því loknu. En ég er fegin því, af því að þetta er auðvitað réttarfar og lýtur að því, að nefndin var sammála við lokameðferð málsins í nefndinni um niðurstöðuna og mikilvægi þess að bæta við og styðja þessar breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu, til að taka af allan vafa um að sá sem leitar réttar síns eigi rétt á að fram fari milliliðalaus sönnunarfærsla. Að það hafi orðið að einhverju vafamáli að slík heimild væri uppi þegar Hæstiréttur telur sig ekki hafa heimild til að viðhafa slíka milliliðalausa sönnunarfærslu og að þetta orðalag, „að nýju“, beri það með sér að ekki sé hægt að viðhafa milliliðalausa sönnunarfærslu fyrir Landsrétti, bjó til ákveðinn ómöguleika sem hefur haft afgerandi áhrif í a.m.k. tveimur málum núna að því að ég held. Það er mikilvægt að við ljúkum þessu núna til þess að tryggja að þeir sem telja sig hafa verið órétti bornir — hafa fengið staðfestingu á því fyrir okkar góða mannréttindadómstól sem staddur er í Strassborg að einhvern veginn hafi verið brotið á þeim varðandi málsmeðferðina — geti þá leitað réttar síns fyrir endurupptökudómstól sem getur þá fyrirskipað nýja málsmeðferð, þar sem málsmeðferðinni sjálfri hafi á einhvern hátt verið ábótavant. Þetta á við um nokkur mál sem eru í farvatninu að því ég tel, ekki er víst að þau séu svo mörg en engu að síður þurfti að tryggja, hvað varðar þau mál sem komin eru inn í endurupptökudómstól og dómstóllinn hefur ekki úrskurðað um nú þegar, að þessi lagabreyting myndi líka eiga við um þau mál sem þegar hefur verið sótt um. Þar er því tekinn af allur vafi og var það býsna góð ábending sem kom frá Lögmannafélaginu þess efnis. Því styð ég heils hugar þessa breytingu og vona að við náum að afgreiða þetta strax á morgun í atkvæðagreiðslu til að þetta geti allt gengið sómasamlega fyrir sig. Réttarkerfið þarfnast þess.