Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þegar ég vaknaði í morgun, hlustaði á vorsöng þrastanna og sá krókusana gægjast upp úr moldinni, var svo óskiljanlegt að íbúar Austurlands búi á sama tíma við þá stöðu að komast vart úr húsum sínum fyrir snjó og lifa við stöðugan ótta við snjóflóð. Í gærmorgun vöknuðu íbúar í Neskaupstað við snjóflóð sem ruddist inn um glugga og dyr. Sem betur fór urðu engin dauðsföll eða alvarleg slys á fólki en óttinn og angistin sem slíkur atburður vekur í brjóstum fólks getur haft langvarandi alvarlegar afleiðingar, ekki síst hjá þeim einstaklingum sem muna fyrri hamfarir og endurlifa nú sársauka og áföll fyrri ára.

Íslensk þjóð þekkir baráttuna við náttúruöflin og hefur búið við duttlunga íslenskrar náttúru frá upphafi. Við getum þó aldrei undirbúið okkur fyrir hamfarir af þessu tagi og mikilvægt að við munum að svona atburðir hafa langtímaafleiðingar á samfélagið í heild. Því er svo mikilvægt að haldið sé vel utan um alla íbúa og að sérstaklega sé hugað að einstaklingum í viðkvæmri stöðu, svo sem fólki af erlendum uppruna, svo öll fyrirmæli, bjargráð og aðstoð rati til allra íbúa.

Enn og aftur verður okkur ljóst hversu mikilvægt hlutverk almannavarnir og aðrir viðbragðsaðilar hafa og hvað hinn almenni borgari er tilbúinn til að ganga langt fyrir meðbræður sína og -systur þegar ógæfan skellur á.

Ég vil enda þessa ræðu mína á því að senda öllum íbúum Austurlands hlýjar kveðjur. Hugur minn er hjá ykkur öllum.