Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég tek undir kærleikskveðjur héðan sem við sendum austur á firði vegna snjóflóðahættu. En ég ætlaði að tala um strandveiðar. Matvælaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingu á strandveiðum þar sem lagt er til að hverfa til fyrirkomulags sem var hér fyrir árið 2018, þ.e. að aflaheimildum sem ráðstafað er til strandveiða verði skipt upp í fjögur landsvæði. Auk þess er lagt upp með að aflaheimildir hvers landsvæðis og tímabils geti verið færanlegar yfir næsta tímabil innan fiskveiðiársins sem þýðir að hvert svæði getur fært ónýttar aflaheimildir yfir á næsta mánuð sem ekki tókst að ná á land í þeim mánuði sem liðinn er. Með frumvarpinu er verið að hverfa til fyrra horfs sem veldur í raun meiri misskiptingu milli landsvæða en núverandi kerfi býður upp á. Ekki er útfært í frumvarpinu hvernig aflaheimildum verði skipt milli landsvæða né hvaða aðferðum verði beitt við að reikna það út. Erfitt getur reynst að finna út hvaða magn á að fara inn á hvert svæði. Áður en breytt var úr skiptingu yfir í einn pott gat mismunur á milli svæða verið frá sex dögum en á öðrum 20 dagar og kapphlaupið á miðin hefst með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Matvælaráðherra hefur skipað samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu sem hefur ekki lokið vinnu sinni og því ekki í takti núna að koma með þetta frumvarp á meðan sú vinna stendur yfir. Að vori er sumarið fram undan í strandveiðinni í óvissu. Ytri aðstæður er lítt hægt að festa í lög. Veðurfar, gæftir og fiskgengd væri gott að geta stýrt en það er ekki í boði. Nú ætti að vera að hefjast sjötta sumarið eftir að þessar breytingar voru gerðar. Því væri farsælast að í haust yrði tekið út hvernig þetta hafi tekist og hvað betur mætti fara í stað þess að rykkja í bakkgírinn án þess að stíga á kúplinguna.
Virðulegi forseti. Það er verið að taka áhættu með markmið kerfisins og því er stefnt í hættu.