Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég tek hér með mér í pontu atvinnuauglýsingablað Morgunblaðsins frá því á sunnudaginn. Mér varð um og ó þegar ég áttaði mig á því, eftir að hafa flett í gegnum blaðið, að það er samanlagt ein atvinnuauglýsing frá einkaaðila. Allar aðrar eru auglýsingar opinberra aðila. Hver og ein einasta auglýsing í heilu atvinnublaði Morgunblaðsins er auglýsing frá opinberum aðilum nema ein sem er auglýsing eftir hjúkrunarfræðingi á heilsugæslu Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði.

Það hefur ítrekað verið rætt um að útþensla báknsins, fjölgun ríkisstarfsmanna og annað því tengt sé búið að vera stjórnlaust hér undanfarin misseri. Ég hef sjaldan séð það kristallast með jafn skýrum hætti og í atvinnublaði Morgunblaðsins síðasta sunnudag. Það að allar auglýsingar séu frá opinberum aðilum nema ein ætti að fá okkur hér í þessum sal til að hugsa hvort við séum á skynsamlegri vegferð. Nú verður fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar væntanlega kynnt á morgun og við fáum tækifæri til að ræða hvar við erum farin út af brautinni og hvar ekki. Mér finnst það blasa við þegar við sjáum þetta svona svart á hvítu að við verðum að spyrna við fótum hvað útþenslu hins opinbera varðar. Við getum einfaldlega ekki búið við það kerfi að atvinnuauglýsingablað heillar helgar sé eingöngu, hér um bil, undirlagt auglýsingum opinberra aðila.