Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Enn á ný erum við minnt á að við búum í harðbýlu landi þar sem allra veðra er von og náttúran minnir oft á sig. Þau tíðindi sem okkur bárust í gærmorgun austan af fjörðum vöktu með okkur óhug og rifjuðu án efa upp hjá okkur mörgum sárar minningar frá snjóflóðunum fyrir vestan fyrir 28 árum. Þá, eins og í gær, var veðrið bjart og fallegt hér syðra og því erfitt að ímynda sér hamfarir og veðurhaminn annars staðar á landinu.

Í dag getum við verið þakklát fyrir þær snjóflóðavarnir sem byggðar voru upp í Neskaupstað. Í gær sönnuðu þær svo sannarlega gildi sitt. Átak var sett í ofanflóðavarnir eftir snjóflóðið á Flateyri í janúar 2020. Þar bjargaðist ung stúlka með giftusamlegum hætti eftir að hafa grafist þar undir snjó. Mikil mildi varð að ekki urðu alvarleg slys á fólki í flóðunum í gær.

Þessir atburðir minna okkur á að þegar atburðir eins og þessir gerast þá eru þau samfélög sem lenda í þessu nær undantekningarlaust einangruð vegna ófærðar og veðurs. Því verður að treysta á að hjálpin sé til staðar í nærsamfélaginu. Sem betur fer hefur okkur Íslendingum tekist að byggja upp öflugar björgunarsveitir svo og almannavarnir. Síðustu fimm daga hefur reynt mikið á björgunarfólk hér á landi — óvenjumörg útköll þyrlu- og björgunarsveita. Ég vil nota tækifærið hér og færa björgunarfólki þakkir fyrir að standa vaktina fyrir okkur allan sólarhringinn alla daga ársins. Á stundum sem þessum finnum við vel fyrir því að þegar reynir á stöndum við saman, hin íslenska þjóð.