afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.
Herra forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir það sem hv. þingmaður sagði hér á undan mér. Ég ætla rétt að vona að Alþingi Íslendinga, alþingismenn, sama hvar í flokki þeir eru, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, átti sig á því hvað það er alvarlegt þegar framkvæmdarvaldið, þegar ráðherra í ríkisstjórninni tekur þá ákvörðun að banna undirstofnun að senda Alþingi gögn sem Alþingi hefur beðið um ítrekað og það eru skýr lög um að þessi gögn beri að veita. Ég ætla rétt að vona að alþingismenn allir hafi núna bein í nefinu til að rýna þetta út frá hagsmunum Alþingis, löggjafarvaldsins, og skoði þetta ekki út frá einhverjum flokkadráttum stjórnar og stjórnarandstöðu. Það væri líka verulega áhugavert að heyra hvað hæstv. forsætisráðherra hefur við því að segja þegar það liggur núna fyrir með skýrum hætti að hæstv. dómsmálaráðherra braut gegn lögum þegar hann kom í veg fyrir að Alþingi gæti sinnt þeirri skyldu sinni að setja lög í landinu.