Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 89. fundur,  28. mars 2023.

afhending gagna varðandi ríkisborgararétt.

[14:09]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Það er alveg skýrt að ráðherra ber að fara að lögum. Jafnvel þótt lög um ráðherraábyrgð hafi ekki verið mjög virk undanfarin ár þá eru þau í gildi. Það má krefja ráðherra ábyrgðar, samkvæmt því sem nánar er mælt fyrir um í lögum um ráðherraábyrgð, fyrir sérhver störf eða vanrækt starf er hann hefur gerst sekur um. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur ekki bara brotið þingskapalög heldur hefur hann sagt þjóðinni ósatt. Hann hefur komið hingað upp í pontu og sagt þjóðinni ósatt um það hver það er sem fer með forræði á veitingu ríkisborgararéttar. Hann hefur skrifað um það greinar. Ég er hérna með fyrir framan mig grein úr Vísi frá því í janúar 2022 þar sem hann talar um að almenna fyrirkomulagið sé að stjórnvöld veiti ríkisborgararétt en að það hafi verið settur sá varnagli að Alþingi kæmi líka að þessu. (Forseti hringir.) Þetta er auðvitað alrangt. Þetta er á forræði Alþingis og hæstv. dómsmálaráðherra hefur gjörsamlega sniðgengið og vanvirt Alþingi Íslendinga (Forseti hringir.) í störfum sínum undanfarin ár. Það er alvarlegt.